Ferill 20. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 20 . mál.


Nd.

284. Breytingartillögur



við frv. til l. um aðgerðir í efnahagsmálum.

Frá Kristínu Halldórsdóttur, Geir H. Haarde og Inga Birni Albertssyni.



1.     Við 1. gr. Fyrri málsliður 5. mgr. falli brott.
2.     Við 2. gr. Í stað „til 1. mars 1989“ komi: fram til gildistöku laga þessara.
3.     Við 3. gr. Í stað „til 28. febrúar 1989“ komi: fram til gildistöku þessara laga.
4.     Við 4. gr.
. a.     Í stað „til 15. febrúar 1989“ í fyrri málslið komi: fram til gildistöku laga þessara.
. b.     Seinni málsliður orðist svo: Frá því er lög þessi taka gildi er heimilt að segja upp kjarasamningum með þeim uppsagnarfresti sem um þá gildir.